Fréttir

Polar Natorliq landar rækju í Hafnarfirði

17. janúar 2012

Grænlenski togarinn Polar Natorliq kom til Hafnarfjarðar í morgun 17. janúar 2012. Polar Natorliq kom með milli 3 og 400 tonn af rækju af Grænlandsmiðum og heldur aftur á sömu mið að löndun og smá lagfæringum loknum.
Auk Polar Natorliq landar Eldborgin frá Lettlandi einnig rækjuafla sínum, auk þess sem togarinn Taurus hefur nýlokið sinni löndun.
Allt eru þetta góðir gestir okkar Hafnfirðinga og fögnum við komum þeirra í hvert sinn.

Smellið á myndina til að stækka hana.