Fréttir

Dorgveiðikeppni í Hafnarfjarðarhöfn

26. júní 2012

Hin árlega dorgveiðikeppni Íþrótta- og tómstundaráðs Hafnarfjarðarbæjar var haldin á flotbryggjum Flensborgarhafnar í dag 26. júní.
Um 200 krakkar tóku þátt í dorginu undir vökulum augum flokksstjóra sinna og umsjónarmanna.
Veitt voru verðlaun fyrir bestu tilþrifin við dorgið. Þegar fréttin fór í loftið var keppninni ekki enn lokið og því ekki séð um úrslit hennar á þeim tímapunkti. En þegar fréttamaður yfirgaf svæðið hafði veiðst koli, ufsi og krabbi, svo eitthvað sé talið.
Ánægja og eftirvænting skein úr hverju andliti og var spennan svo mikil að einn veiðimaður spurði hvort til væri skófla undir aflann.

Smellið á myndina til að stækka hana.