Fréttir

Spennar til Staumsvíkur

14. október 2011

Flutningaskipið STELLANOVA kom til Straumsvíkur í gær með þrjá af sex spennum sem þarf til straumaukningarverkefnisins í álveri Rio-Tinto í Straumsvík. Spennarnir vega samtals um 300 tonn og með skipinu eru einnig sérstakir flutningavangar til að flytja spennana innan svæðis álversins.
Þrír spennar til viðbótar koma svo eftir áramótin. Þeir koma allir frá svissneska fyrirtækinu ABB, Asea Brown Boveri.
STELLANOVA er 95 metrar á lengd og 4.955 brúttótonn að stærð. Við losun spennanna frá borði hífa skipverjar lestarlúgurnar í sjóinn við hliðina á skipinu þar sem þær fljóta uns lestunum verður lokað aftur. Skipið hefur sjálft krana um borð til að hífa spennana í land. Beðið er veðurs til að hífa spennana í land og að því loknu fer skipið aftur.

Smellið á myndina til að stækka hana.