Fréttir

Tvö farmskip lesta í Hafnarfjarðarhöfn

04. janúar 2012

Farmskipin Laxfoss og Reina lesta nú vörur í Hafnarfjarðarhöfn.
Laxfoss, í eigu Eimskip, lestar nú um 300 tonn af salti til að flytja út á land.
Reina, í eigu Samherja, lestar um 1.000 tonn af síldarflökum til að sigla með á erlendan markað.
Bæði skipin eru lausaflutningaskip , Reina frystiskip og Laxfoss þurrflutningaskip.
Bæði skipin áætla brottför í dag 4. janúar 2012.

Smellið á myndina til að stækka hana.