Gjaldskrá

Gildir frá 3. janúar 2012

Virðisaukaskattur: 
Allar upphæðir í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts.
Hafnarfjarðarhöfn innheimtir virðisaukaskatt af öllum gjöldum þessarar gjaldskrár, samanber 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.

Skipagjöld:
Við ákvörðun hafnagjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miða við brúttótonnatölu (BT) skipa samkvæmt alþjóðlegu mælibréfi, sem gefið er út eftir ákvæðum alþjóðasamþykktar um mælingu skipa frá 1969.
Af öllum skipum skal greiða hafnargjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og / eða njóta þjónustu hennar.

Lestargjöld:
Af öllum skipum skal greiða lestargjald, kr. 12,65 á mælieiningu.

Bryggjugjöld:
Af öllum skipum sem leggjast að bryggju eða hafnarbakka skal greiða bryggjugjald, kr. 7,25 á BT, fyrir hvern byrjaðan sólarhring.
Bátar allt að 20 BT greiða kr. 9.000,- á mánuði.
Bátar 21 til 50 BT greiða kr. 14.200,- á mánuði.
Bátar 51 til 100 BT greiða kr. 21.500,- á mánuði.
Bátar við flotbryggjur:
- fyrir bát allt að 9 metra greiðast kr. 12.000,- á mánuði.
- fyrir bát lengri en 9 metra greiðast kr. 17.700,- á mánuði.
- ef bás er leigður allt árið og leiga greidd fyrirfram er greidd 9 mánaða leiga. 
Uppistöðugald fyrir báta, sem geymdir eru á hafnarsvæðinu, er kr. 3.350,- á mánuði.
Fyrir aðstöðu til þrifa og minni viðgerða á bryggjum skal greiða kr. 5.600,- á viku, Lágmarskgjald er fyrir eina viku.
Heimilt er að fimmfalda bryggjugjald á skip og báta sem liggja lengi við bryggju og hafa verið án haffærisskírteinis í a.m.k. 6 mánuði.
Heimilt er að þrefalda bryggjugjöld á skip og báta sem liggja langtímaviðlegu vegna annarrar starfsemi en útgerðar.

Vörugjöld:
Vörugjöld skal greiða af öllum vörum, sem fluttar eru úr skipi á land eða úr landi í skip eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, en þó með undantekningum, sem getið verður um síðar.
Fyrir vöru, sem samkvæmt farmskrá skips er ákveðin til annarrar hafnar (erlendra eða innlendrar) en er látin á land um stundarsakir, skulu aðeins greidd vörugjöld þegar varan eru flutt í land.
Ekki eru reiknuð vörugjöld af vöru sem lögð er á land tímabundið vegna óhapps eða viðgerða skips.
Vörugjöld eru reiknuð miðað við heildarþyngd vöru eða heildarverðmæti afla, samanber skýringar með einsökum gjaldflokkum.
Fara skal eftir farmskrá og aflaskýrslu við útreikning vörugjalda.
Skipstjóri eða umboðsmaður hans skal skila farmskrá til Hafnarfjarðarhafnar.

1. flokkur: kr. 261,00 pr. tonn.
Heilfarmar af lausu efni, sem losað er eða lestað með færiböndum, krönum, ámokstursvélum eða með dælingu svo sem kol, korn, salt, jarðefni, kísilgúr, þörungamjöl, sement, áburður, koks, gifs og úrgangur, sem fluttur er til endurvinnslu, ásamt sambærilegum farmi.

2. flokkur: kr. 319,00 pr. tonn.
Heilfarmar af vökva sem dælt er í land eða um borð í skip, svo sem bensín, brennsluolíur og lýsi. Heilfarmar af fiskimjöli.

3. flokkur: kr. 545,00 pr. tonn.
Þungavarningur til byggingaframkvæmda, svo sem steupustyrktarjárn, stálbitar, húshlutar, byggingareiningar, rör, gifsplötur, rafmagnsstrengir,  málmklæðningar og einangrun. Hráefni til iðnaðar. Óunnir málmar og timbur. Veiðarfæri, og smurningsolíur. Landbúnaðarafurðir, sjávarafurðir og matvara, þar með taldar drykkjarvörur.

4. flokkur: kr. 1.478,- pr. tonn.
Aðrar vörur en þær sem tilgreindar eru í 1. 2. 3. og 5. flokki.

5. flokkur: aflagjald 1,27 % af aflaverðmæti.
Hámarks aflagjald verði 5.750 krónur á tonn.
Gjald af frystum afla veiðiskipa reiknast 0,70 % af heildaraflaverðmæti, samkvæmt ákvæðum hafnalaga nr. 61/2003 og breytingum þeirra nr. 88/2010.
Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans.
Kaupanda aflans ber að að afhenda hafnarstjóra skýrslu um keyptan afla að minnsta kosti mánaðarlega, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Kaupandi aflans innheimtir gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafnarsjóðs, þó hann vanræki innheimtu þess.

Þjónusta hafnarinnar:

Vinnutími hafnarstarfsmanna.
Dagvinna hafnarstarfsmanna er frá kl 08:00 til 17:00 alla virka daga ársins.

Hafnsaga:
Farmskip og togarar, aðrir en togarar með heimahöfn í Hafnarfirði, skulu hlíta hafnsöguskyldu við komu og brottför til Hafnarfjarðarhafnar. Undanþága er veitt frá hafnsöguskyldu í vissum tilfellum, samkvæmt hafnarreglugerð um Hafnarfjarðarhöfn.
Fyrir leiðsögu inn og út af hafnarsvæði Hafnarfjarðarhafnar skal greitt kr. 6.200,- fyrir hvert skip. Auk þess skal greiða kr. 9,70 pr. BT.
Hafnsögugjaldið er fyrir leiðsögu bæði inn og út af hafnarsvæðinu.
Fyrir leiðsögu og þjónustu innan hafnar skal greitt hálft hafnsögugjald.
Ef skipstjóri skips hefur hafnsöguréttindi, samkvæmt ákvörðun hafnarstjóra og hafnsögumaður fer ekki um borð, er greitt hafnsögugjald.

Hafnarbátar:
Kr. 8,88 pr. brúttótonn pr. klst.
Lágmarksgjald á klst fyrir HB Þrótt er kr. 38.000,-
Lágmarksgjald á klst fyrir HB Hamar er kr. 52.500,-
Hámarksgjald á klst fyrir hafnarbáta er kr. 250.000,-

Festarþjónusta:
Festargjald fyrir hvern mann í dagvinnu er kr. 9.800,-
Festargjald fyrir hvern mann í yfirvinnu er kr. 14.400,-

Vigtar- og skráningarþjónusta:
Vigtun pr. tonn, kr. 270,-
Lágmarksgjald á bílavog kr. 1.700,-
Fyrir skráningar í lóðsinn (án vigtunar) greiðast kr 2.300,- pr. löndun.
Yfirvinna og útköll greiðast sérstaklega.

Siglingavernd:
Sérstaklega skal greiða fyrir siglingavernd á hafnarsvæðinu.
Fyrir skipavernd skal greiða kr. 38.000 pr. komu skips.
Fyrir farmvernd skal greiða 20% álag á vörugjöld.
Fyrir umbeðna vaktþjónustu við skip skal greiða kr. 3.200,- á klst á dagvinnutíma og kr. 4.800,- á yfirvinnutíma, eða samhvæmt reikningi frá utanaðkomandi þjónustufyrirtæki, með 15 % álagi.

Sorphirða:
Meginregla um sorphirðu er að skip panta sorpgáma til að losa í meðan á hafnardvöl stendur. Starfsmenn hafnarinnar aðstoða fúslega við pöntun sorpgáma.
Ef höfnin í undantekningartilvikum sér um sorpförgun fyrir skip, eða aðra viðskiptavini, skal greiða kr. 85,00 fyrir hvert kíló sorps í sorphirðu-, og förgunarkostnað.
Yfirvinna og útköll, vegna sorpmóttöku, greiðast sérstaklega.
Vélavinna við sorphirðu greiðist sérstaklega.

Tímavinna og útköll utan dagvinnutíma:
Tímavinna og útköll utan dagvinnutíma hafnarstarfsmanna greiðast þegar þessarar vinnu er óskað.
Tímagjaldið er kr. 4.800 á klst.
Útkall reiknast minnst 4 klst og ef fleiri en einn viðskiptavinur nýtur þjónustu í sama útkalli skiptist kostnaðurinn milli aðila í hlutfalli við veitta þjónustu.

Hafnleguvottorð:
Fyrir hafnleguvottorð skal greiða kr. 1.672,-

Vatn:
Selt vatn kr. 440,- pr. tonn. Lágmarksgjald miðast við 5 tonn.
Yfirvinna og útköll greiðast sérstaklega.

Rafmagn:
Greiða skal kr. 14,70 pr kwst. rafmagns.
Tengigjald rafmagns kr. 2.400,-. á dagvinnutíma og kr. 4.800,- utan dagvinnutíma.
Yfirvinna og útköll greiðast sérstaklega.

Lóðagjöld og lóðaleiga
Lóðagjöld fyrir einstakar lóðir eru ákveðin af hafnarstjórn á hverjum tíma.
Lóðaleiga er 1,5 % af fasteignamati lóða innan Suðurgarðs.
Lóðaleiga er 2,5 % af fasteignamati lóða utan Suðurgarðs.
Geymslusvæði utan lóða kr. 105,00 kr. á fermetra á mánuði.
Heimilt er að semja um frávik frá framangreindri lóðaleigu fyrir farmstöðvar stærri en 4 hektara.

Innheimta og greiðsla gjalda:
Öll gjöld skal greiða samkvæmt tilvísunum frá hafnarskrifstofunni. Dráttarvextir eru lagðir á vanskil fram yfir gjalddaga og skuld send til innheimtu ef dráttur á greiðslu verður óhóflegur.
Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafnarfjarðarhafnar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr.326/2004 um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.
Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.
Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður sem skip hefur siglingu, nema annað sé sérstaklega um samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.
Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.
Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.
Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. Hafnalaga nr. 61/2003. Hafnarfjarðarhöfn er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.

Gildistaka:
Gjaldskráin gildir frá 03. janúar 2012 og þangað til annað verður ákveðið.
Gjaldskráin var samþykkt á fundi hafnarstjórnar 3. janúar 2012.

Már Sveinbjörnsson
hafnarstjóri