Dýpkunarframkvæmdir standa nú yfir á vegum Hafnarfjarðarhafnar framan við Vesturhamarinn við Strandgötu, þar sem ný smábátahöfn, Hamarshöfn, mun verða fullgerð á næstu 2 árum.
Það er fyrirtækið Sjótækni sem annast dýpkunina en alls er reiknað með að fjarlægja um 30 þús. rúmm. af botnseti á þessu nýja hafnarsvæði. Leirbotn, eða jökulsilti er þarna á botninum og ekki gert ráð fyrir neinum sprengingum. Uppgreftrinum er komið fyrir á svæði sunnan við Helgasker. Reiknað er með að verkið taki um 2 mánuði og verði lokið undir lok apríl.
Hamarshöfn er hluti af nýju uppbyggingarsvæði við Flensborgarhöfn. Smábátahöfnin við Flensborg var byggð um 1980 og er löngu sprungin er þar er rými fyrir liðlega 80 báta. Nýja Hamarshöfnin mun rýma um 60 báta við flotbryggjur og að auki verður viðlegukantur við hafnargarð utan við flotbryggjurnar.
Nýja höfnin er fyrst og fremst hugsuð fyrir skútur og skemmtibáta, en gamla Flensborgarhöfnin verður fyrir smærri fiskibáta.